Klukkan

Auglýsing

Spakmæli vikunnar

Mundu mig, ég man þig:)

KHÍ Bloggarar

Lifi enn...

06. september 2008 klukkan 00:16
Vegna gífurlegs þrýstings ( aðalega frá mér ) ætla ég að henda hér inn einni færslu og sjá hvað hún gefur mér.

Kannski þarf ég að rita niður atburði líðandi stundar til að átta mig á hvað hefur gerst. Það er nefnilega þannig að eftir margra mánaða iðjuleysi virðast allir hlutir gerast á sama tíma og þar sem ég á mjög erfitt með að meðtaka mikið í einu þá fer ekki nema annar helmingurinn af upplýsingunum inn núna og síðan sá seinni kannski seinna.

Byrjaði að vinna um miðjan ágúst, 18 fyrstu bekkingar horfa á mig stórum augum á hverjum degi og bíða eftir að ég segi eitthvað gáfulegt....er enn að hugsa um hvað það ætti að vera.

Byrjaði í skólanum í lok ágúst, búin að kaupa fullt af fróðleik sem kostar fullt af peningum sem mun vonandi skila sér til baka með fullt af launum.
Byrjuð á fyrsta verkefni skólans, finna mér pöddu til að hlú að í 3 vikur og skrásetja allt sem hún gerir. Dabbinn minn var svo almennilegur að finna handa mér 10 ertuyglur og nú kúra þær í einni klessu í salatboxi og við fylgjumst spennt með. Í dag er ein búin að teygja úr sér og önnur færði sig um 3 millimetra...svo skráum við þetta samviskusamlega niður.

3 kettlingar fæddust í lok júlí...einn kominn með heimili og hinir tveir auglýsa sig hér með.

Dabbinn kominn í 5. bekk og byrjaður að læra ensku og dönsku...sagðist nú ekkert geta lært þessa dönsku...gæti ekki einu sinni lært íslensku almennilega. Kom síðan heim eftir fyrsta tímann með sólskinsbros og sagði að þetta væri nú ekki mikið mál.

Leikfélagið komið á fullt, mikið að gerast, fullt af spennandi námskeiðum og djúsí leikrit í smíðum.

Þetta var nú helstið í bili.....

Síja...
Hæ þetta er nú barastu þónokkuð, lítur út fyrir að vera bara nokkuð skemmtilegt. Ég tók mér það bessaleifi að kjósa frábært veður en veðrið hjá mér er nú kannski ekki það sama og hjá ykkur. En ég sendi bara kveðju á Selfyssinga og Leikfélagsmenn sérstaklega frá sunny California.
#1
07. september 2008 klukkan 05:49
 
Maggi frændi
Þar kom að því, ég er alltaf að kíkja á síðuna þína af og til og annað slagið og endrum og eins og við og við og stöku sinnum, var alveg að því kominn að fara að leita að þér. Þú ert svo bráðsnjall penni, getur bæði sagt mikið í stuttu máli og lítið í löngu máli, en alltaf gaman að lesa textann þinn, elsku fænka.
Mér datt í hug að senda þér fundargerð sem ég heyrði einhvern tíma og lagði á minnið, dæmi um hvernig miklu efni er komið fyrir í stuttum texta:

Fundur settur, fáir mættir,
flóir vín um allar gættir.
Flestir drukku frá sér vitið.
Fundi slitið.

Með bestu kveðju. Maggi frændi, Kolbeinsson.
#2
09. september 2008 klukkan 22:53
Takk fyrir þetta Maggi minn....

Frábær fundargerð, verð að láta ritara voran í leikfélaginu mínu fá þetta.....

Þyrfti að fara að heyra í þér við tækifæri....skráðu þig inn á facebook, fullt af ættingjum þar:)
#3
12. september 2008 klukkan 17:43
 
Linda Hrönn
Takk fyrir yndislegan Laugardag í bókstaflegri merkingu þess orðs.
Knús og kossar til Davíðs líka

Kv Nökkvavogsgengið
#4
21. september 2008 klukkan 23:36

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Hunangsbýflugan

Könnun

Á ég að eyða tíma mínum í blogg?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur