Hér ætla ég að setja nokkur gullkorn sem koma frá syni mínum..........
2007
Við vorum stödd í Bónus um daginn að versla inn fyrir helgina. Við trillum saman með kerruna, hlið við hlið ægilega sæt.
Allt í einu tek ég eftir því að hægri höndin mín er ekki lengur til staða og þegar ég lít við sé ég að hann gengur aðeins á eftir mér...mjöööög hægt. Ég kalla á hann að koma og hann kallar til baka, ansi hátt " mamma, ég bara kemst ekkert hraðar, ég er í fötum frá Dressmann"
Segið svo að Spaugstofan skil sér ekki inn á heimilið
2007
Við vorum að rúnta um daginn og keyrðum framhjá kirkjunni. Þar voru brúðkaupsgestir að yfirgefa kirkjuna brúðhjónin að aka á brott í fagurskreyttum bíl. Davíð spyr mig þá hvort ég ætli að skreyta bílinn okkar svona þegar ég gifti mig. "þegar ég gifti mig, er ég að fara að gera það" " já, einhvern tímann, ég er búin að ákveða það" svaraði hann. " Nú, og hverjum ætla ég að giftast"? " bara einhverjum" " einhverjum? nei, þurfum við nú ekki að koma með einhverjar kröfur? við verðum nú að vita hvað við viljum" hann hugsaði sig um og sagði svo " hann má ekki vera með skegg, ekki of stór og hann verður að vera góður".......
16. ágúst
Hann Davíð minn er alveg einstaklega mikill morgunkúrubangsi og kemur ævinlega upp í til mína á morgnana. Þetta eru stundirnar þar sem velta upp úr honum ótrúlegustu hlutir. Einn morguninn kom hann upp í og vildi bara ómögulega fara á fætur. Þegar það gerist tekur hann sig til og notar alla sína sjarmör takta til að halda ér lengur í rúminu og þessi morgunn var enginn undantekning. " nei, við skulum ekki fara á fætur, ég á eftir að kúra meira í mömmu sín, það er svo gott að kúra í mömmubóli, þú ert svo mjúk..." og svo framvegis og svo framvegis...
Auðvitað tekur maður þátt í svona smjaðri " þú ert besti strákurinn minn, það er svo gott að knúsa þig, kúrubangsi.....mikið ertu heppinn að eiga svona mömmu sem nennir að kúra....er ég bara ekki besta mamman sem til er..:"
Svarar þá ekki dýrið..." jú, þú hentar mér ágætlega"
31 ágúst
"þetta gerir nú meira gagn en einhver mamma sem öskrar bara og kveikir ljósin í herberginu mín" voru orð drengsins um nýju vekjaraklukkuna.
Vil taka það fram að ég öskra ekki fyrr en í 10. skiptið sem ég kalla á hann að fara á fætu......